Íslenska arrow Húsin arrow Archfeld blvd
 
 

Archfeld blvd

Húsið við Archfeld blvd er glænýtt og stórglæsilegt. Byggt árið 2008 og er hannað og innréttað á faglegan hátt. Eignin er frábærlega staðsett í virðulega Windsor Hills dvalarleyfis-hverfinu.

Archfeld blvd hefur allt upp á að bjóða sem þú og fjölskyldan þín komið til með að þurfa til að geta átt draumafríið ykkar í Orlando, Flórida.
Staðsett innan við 5km frá Disney World í hinu frábæra Windsor Hills dvalarleyfis-hverfi og er því hinn fullkomni upphafspunktur fyrir ferðalag og upplifun ykkar um Flórída.

Hvort sem draumar ykkar eru að njóta gestrisni og hlýrra móttaka Disney World / Universal Studios / Sea World eða annarra skemmtigarða. Að slappa af á einum af mörgum lúxus golfvöllum á svæðinu, skella sér í sólbað á einni af nálægri strönd t.d. Cocoa-, Daytona- eða Tampa Beach. Rölta um loftkældar verslunarmiðstöðvarnar sem eru fullar af fínustu merkjavörunum eða bara slappa af í Archfeld blvd villunni og sleikja sólina á meðan þið svamlið í sundlauginni.

Eignin við Archfeld blvd er hið fullkomna annað heimili, tekur strax vel á móti þér og sinnir þínum þörfum. Þú færð enga innilokunarkennd í þessu rúmgóða 260 fermetra heimili.
Með 6 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum er þessa heimili fullkomið fyrir stærri fjölskyldur og tekur 12 manns í góð uppbúin rúm (engir svefnsófar). Húsið er búið fullkominni loftkælingu sem ekki veitir af yfir heitari sumarmánuðina.

Hér er hægt að sjá 360° myndir af húsinu SKOÐA

Archfeld blvd Bowring st Umhverfið Panta hús

Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun