• Risastór sundlaug með frábærri vatnsrennibraut.• Heitur pottur af stærri gerðinni.
• Sérhannað barnaleiksvæði
• Líkamsræktarsalur – vel tækjum og tólum búinn.
• Sand blakvöllur
• Minigolf
• Körfuboltavellir
• Tennisvellir
• Bíósalur með sætum fyrir rúmlega 40 manns, þú velur myndirnar sjálfur.
• Leiktækjasalur
• Billjarðsborð
• Smávöruverslun með öllu því helsta
• Skutlur í helstu garðana (fyrir sanngjarnt gjald)
• Lokað svæði sem er vaktað allan sólahringinn.
Windsor Hills er glænýr og fallegur sumarleyfis-dvalarstaður, frábærlega staðsettur gagnvart öllu því áhugaverðasta um miðsvæði Flórída.
Windsor Hills er nálægasti dvalarstaðurinn við Disney Word, staðsettur innan við 5 km frá aðalinnganginum. Stutt í burtu má einnig finna fleirri skemmtigarða eins og t.d. Universal Studios, Sea World og Aquatica sem er glænýr og stórglæsilegur vatns-leikgarður.
Í raun er Windsor Hills svo stutt frá Disney World að það er oft hægt að njóta daglegra flugeldasýninga þaðan. Þetta er eins nálægt og þú kemst – án þess að vera á hóteli í skemmtigarðinum.
Eftir að hafa aðeins verið til í örfá ár, hefur Windsor Hills oft tyllt sér á toppinn yfir mest rómuðu og virðulegustu lokuðu sumarleyfis-dvalarstaðina í Orlando og það ekki bara út af einni ástæðu. Ekki eingöngu er aðstöðunni sjálfri gefnar 5 stjörnur, og allri þjónustunni sem þar er í boði – heldur er staðsetningin stórkostleg. Í næsta nágrenni eru mörg hundruðir verslana og veitingastaða sem og fjölbreyttasta úrval af skemmtigörðum, golfvöllum og hinum ýmsu afþreyingum þó víðar væri leitað.
Þegar talað er um að Windsor Hills sé lokaður dvalarleyfirsstaður er átt við að hann er 100% afgirtur, með mönnuðum hliðum og 24 klukkustunda öryggisgæslu á svæðinu.
Þegar kemur að því að þig langi til að taka þér frí frá skemmtigörðunum, eða ef þeir voru aldrei á dagskránni, er Windsor Hills hinn fullkomni staður fyrir fjölskylduna í leik, og/eða afslöppun í heitri sólinni á Flórída. Þetta gæti auðveldlega talist sem endastaður fyrir fríið einn og sér, og margir gestir eyða frítímanum í sínu eigin húsi, með sína eigin sundlaug og hlaða batteríin í ró og næði.
Í stuttu göngufæri frá báðum húsum er stórfenglegt 930 fermetra klúbbhús með góðri yfirsýn yfir nýtískulega og stóra 50m sundlaug með vatnsrennibraut, buslpolli fyrir börn, gosbrunna, sólbekki, strandsvæði og stórum nuddpotti sem er miðdepill fullbúins klúbbhússins. Að auki er innan klúbbhússins líkamsræktarsalur, einka-bíósalur með sætum fyrir rúmlega 40 manns með HD gæði á mynd og surround hljóði. Allt sem klúbbhúsið býður upp á geta leigjendur húsanna nýtt sér, algerlega gjaldfrjálst
Einnig er sérhannað leiksvæði fyrir börnin rétt utan klúbbhússins, með allskyns rennibrautum og leiktækjum – að ógleymdum alvöru kastala og dreka sem gætir hans. Þess má geta að fyrir framan húsið við Bowring str. er einstaklega fallegt leiksvæði fyrir börnin með klifurkastala, rólum og rennibrautum.
Útivistasvæði fyrir aftan klúbbhúsið er einnig glæsilegt í alla staði og nýfrágengið. Þar er hægt að finna tennisvelli, körfuboltavelli og strandblakvöll ásamt stórum púttvelli fyrir golfáhugamanninn. Einnig eru þar yfirbyggðir grillskálar og salernisaðstaða. Og fyrir þá sem eru á eilífðarferðalagi er góð aðstaða þar til að geyma húsbíla, kerrur, mótorhjól og báta.
Ef golf er aðal áhugamálið má ekki gleyma að minnast á næsta nágrannan – Mystic Dunes. Sá golfvöllur var hannaður af Gary Koch úr PGA mótaröðinni. Þar er hægt að spreyta sig á glæsilegum 18 holu golfvelli með tveimur ólíkum 9 holum. Svæðinu er haldið við á óaðfinnanlegan hátt og hvergi sparað í nýjungum.
Í tíu mínútna fjarlægð er Champions Gate golfvöllurinn sem var hannaður að atvinnumönnum í golfi og örlítið lengra eru minnst 15 aðrir frábærir golfvellir, þar á meðal Falcon´s Fire, nokkrir í Disney World og margir fleiri. Allt miðsvæði Flórída er draumur golfarans, sífellt gott veður og rosalegt úrval af golfvöllum – svo ekki gleyma kylfunum eftir heima!
Windsor Hills er rétt við hliðið í Disney World og stutt er í aðra skemmtigarða Orlando og stóru verslanamiðstöðvarnar. Allt þetta gerir Windosor Hills að einhverju besta útleiguhverfi Orlando en mjög vel gengur að leigja út húsin og hafa þannig tekjur af þeim á milli þess sem eignendur nota þau sjálfir.
Golf : Fjölmargir frábærir golfvellir eru í næsta nágreni svo sem Mystic Dunes sem er við hliðina, Celebration 5 mínútur, Champions Gate og Runion 5 mínútur. Á Disney svæðinu eru frábærir vellir. Providence 15 mínútur. Og auðvitað margir aðrir vellir en á Orlando svæðinu eru á annað hundrað golfvellir
Hverfið 



