Bowring st. eignin hefur allt upp á að bjóða sem þú og fjölskyldan þín komið til með að þurfa til að geta átt draumafríið ykkar í Orlando, Flórida.Staðsett innan við 5km frá Disney World í hinu frábæra Windsor Hills dvalarleyfis-hverfi og er því hinn fullkomni upphafspunktur fyrir ferðalag og upplifun ykkar um Flórída.
Hvort sem draumar ykkar eru að njóta gestrisni og hlýrra móttaka Disney World / Universal Studios / Sea World eða annarra skemmtigarða. Að slappa af á einum af mörgum lúxus golfvöllum á svæðinu, skella sér í sólbað á einni af nálægri strönd t.d. Cocoa-, Daytona- eða Tampa Beach. Rölta um loftkældar verslunarmiðstöðvarnar sem eru fullar af fínustu merkjavörunum eða bara slappa af í Bowring st. villunni og sleikja sólina á meðan þið svamlið í sundlauginni.
Eignin við Bowring st. er hið fullkomna annað heimili, tekur strax vel á móti þér og sinnir þínum þörfum. Þú færð enga innilokunarkennd í þessu rúmgóða 217 fermetra heimili.
Með 5 svefnherbergjum og 5 baðherbergjum er þetta heimili fullkomið fyrir stærri fjölskyldur og tekur 10 manns í góð uppbúin rúm (engir svefnsófar). Húsið er búið fullkominni loftkælingu sem ekki veitir af yfir heitari sumarmánuðina.Bílskúrnum hefur verið breytt í svokallað leikjaherbergi en þar er hægt að stytta sér stundir við pílukast, þythokkí, foosball eða pool – ef öll þessi sól og blíða er farin að vera þreytandi.
Eitt af því sem einkennir rólegu og barnvænu götuna Bowring st. er uppsetningin á götunni. Gatan liggur í hring og standa húsin öll utan við hringinn en á opna svæðinu fyrir framan húsin er fyrirtaks leikvöllur fyrir yngstu kynslóðina og bekkir fyrir þá eldri.




